Heimurinn: Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, skrifaði:
„Í Rússlandi eru þeir sem gagnrýna Pútín settir á lista yfir „erlenda agenta.“ Þeir sem lenda á listanum missa vinnuna, þurfa að borga sektir (meðal annars fyrir að hafa ekki gefið sig fram!) og eiga að tilkynna allt sem þeir kaupa inn, meðal annars í matinn, auk þess að vera undir stöðugu eftirliti (sem reyndar er mjög dýrt fyrir ríkiskassann).
Nágrannar eru hvattir til að tilkynna hvorn annann. Hugmyndin er sú að engum gæti dottið í hug að gagnrýna Pútín, þeir sem slíkt gera hljóta að vera á mála hjá erlendum öflum. Því miður verður æ meira vart við slíkt á Vesturlöndum líka, skoðanir eru gerðar tortryggilegar með dylgjum um að einhver borgi fyrir þær, því engum gæti dottið í hug að hafa neitt fram að færa án þess að fá peninga. Manneskjur virka hins vegar ekki þannig. En áróður gerir það.“