Alþingi: Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki talaði um þá ákvörðun að taka burt línuívilnun og eins rækju- og skelbætur. Sagði þessar breytingar hitta Stykkishólm sérlega illa. Ingibjörg sagði:
„Hvað gerist þegar stjórnvöld biðja samfélög um að taka þátt í stefnu en snúa baki við þeim þegar hentar, t.d. nú til að uppfylla kosningaloforð Flokks fólksins um 48 daga strandveiðar? Á níunda áratugnum var ákveðið að byggja upp nýja atvinnugrein í kringum skelveiðar. Til þess þurftu útgerðir að láta frá sér hluta af öðrum veiðiheimildum, m.a. í þorski. Útgerðirnar og samfélögin samþykktu þetta. Þau treystu. Þau fylgdu stefnu stjórnvalda, lögðu sitt af mörkum og byggðu upp atvinnu í kringum þessa grein. Síðan hrundi hörpudisksstofninn.“
„Atvinnugrein, sem byggðarlög höfðu reitt sig á, hvarf nánast á einni nóttu. Þá voru settar á skel- og rækjubætur til að bregðast við því áfalli. En nú er sagt í frumvarpi iðnaðarráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða: Bætur eiga að hverfa. Línuívilnun, rækju- og skelbætur ætlar iðnaðarráðherra nú að nema brott? Ég spyr: Hvernig er metinn fórnarkostnaðurinn sem samfélög tóku á sig á sínum tíma? Hvar er uppgjörið við þær veiðiheimildir sem voru gefnar eftir? Nei. Áfram leggur ríkisstjórnin til atlögu við byggðir landsins en talar á sama tíma stöðugt um að styrkja byggðir landsins og halda uppi atvinnu um allt land. Þessi áform veikja byggðir landsins. Það er nú þannig að í litlum sjávarbyggðum getur einn vinnustaður skipt sköpum fyrir samfélagið, skipt sköpum.
Ég nefni bæjarfélagið Stykkishólm sérstaklega í þessu samhengi. Þessi áform gætu orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið. Þegar starfsemi veikist eða leggst af hefur það keðjuverkandi áhrif á störf, þjónustu, verslun og tekjur sveitarfélaga. Það hefur áhrif á atvinnu og lífsviðurværi fólks. Hér er að verða mjög alvarlegt rof á trausti, trausti sem stjórnvöld þessa lands rjúfa með fyrirætlan um að afnema línuívilnun, rækju- og skelbætur. Rof á trausti milli ríkisins og þeirra samfélaga sem hafa byggt lífsviðurværi sitt á sjávarútvegi. Svona gerir maður ekki.“