Við erum boðuð á Austurvöll klukkan þrjú á morgun. Ríkisstjórn Íslands lætur óátalið að 17 ára drengur frá Kolumbíu verði sendur til síns heima. Þar sem ekkert bíðir hans annað en götulíf. Framtíð hans á að fórna.
Margsinnis hafa erlenir ríkisborgarar fengið skjól á Íslandi. Nú á að rífa Oscar upp með rótum. Hér hefur hann eignast góða vini sem vilja taka hann til sín. Bjóða honum það sem við öll þurfum, gott heimili, ást og umhyggju.
Fram kom í þætti á Samstöðinni að íslenska fjölskylda hans hafa skrifað öllum formönnum stjórnarflokkanna og beðið um hjálp. Engin þeirra hefur svarað. Það er annað en þegar fyrrverandi tengdamamma vildi fund með Kristrúnu. Þá var brugðist við.
Ríkisstjórnin hefur fellt laufin. Eftir standa berar greinarnar. Mýktin sem fylgdi ásjónu nýju ríkisstjórnarinnar er hörnuð. Okkur er stefnt á Austurvöll á morgun. Til að berjast við grjótharða ríkisstjórn Kristrúnar, Þorgerðar og Ingu.
Stöndum saman gegn ofbeldi ríkisvaldsins.
-hh
Það er ekki stefnan Miðjunnar að taka við greinum sem eru ekki skrifaðar undir nafni höfunda. Hér er gerð undantekning.