Brot úr umræðunum á Alþingi í gærkvöld:
Bergþór Ólason Miðflokki:
„Hæstvirtur forsætisráðherra sagði í ræðu sinni áðan að við værum ein þjóð í einu landi. Ég hvet hæstvirtan forsætisráðherra til að íhuga þetta í því samhengi að ríkisstjórnin fór í þá vegferð sem raunin varð, sem fór langleiðina með að kljúfa þjóðina í herðar niður, og sýna smá lítillæti í því samhengi. Steininn tók svo úr þegar hæstvirtur utanríkisráðherra kom hér í pontu. Ef einhver velktist í vafa um að utanríkisráðherra væri áhugalaus um að leiða ágreining í jörðu, að skapa sátt í samfélaginu, þá var þeim vafa eytt hér fyrr í kvöld. Formaður Viðreisnar, hæstvirtur utanríkisráðherra, hefur sérhæft sig í því að gera pólitískum andstæðingum sínum upp skoðanir og skamma þá svo fyrir að hafa þær. Það er einhvern veginn þannig að sú ræða sem hér var flutt áðan var vondur kokteill af biturð, heift og hefnigirni og verður vonandi ekki sá taktur sem við munum ganga undir í gegnum þennan þingvetur.“
Aðeins síðar í ræðunni sagði Bergþór:
„Tugmilljarða skattahækkanir blasa við önnur fjárlögin í röð og ekkert bendir til þess að stjórninni þyki nóg komið. Nú er það ferðaþjónustan sem fær þyngstu höggin en áformuð viðbótarskattheimta úr þeim ranni samsvarar rúmlega helmingi af heildarafkomu allrar greinarinnar árið 2024. Heldur ríkisstjórnin virkilega að þetta ýti undir fjárfestingu? Ríkisstjórnin lofaði nefnilega að ná tökum á ríkisfjármálunum en hingað til hefur hún fyrst og fremst náð tökum á veski skattgreiðenda.“
Hér má lesa alla ræðu Bergþórs.