- Advertisement -

Ríkisstjórnin hefur gefist upp“

„Þau komu með fjármálaáætlun síðasta vor. Þar kemur fjármálaráð sem samanstendur af tveimur doktorum í hagfræði og einum master og hefur það eina hlutverk að benda á veikleika í fjármálaáætlun. Hvað gerði hæstvirt ríkisstjórn gagnvart gagnrýni og álitsgerð fjármálaráðs sem gekk út á að þetta væri allt of bjartsýnt, þetta væri ekki trúverðugt og myndi ekki slá á verðbólguvæntingar vegna þess að menn væru — þrátt fyrir að þeir segðu að það væri afkomubati og þeir ætluðu að hafa einn milljarð í afgang, núna eru þeir fjórir, að safna skuldum? Sömuleiðis væru ríkisfjármálin ekki sjálfbær og það þyrfti að grípa til aðgerða af því að það væri forsendubrestur þegar hæstvirt ríkisstjórnin fór í þær lagabreytingar sem hún gerði,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson í fjárlagaumræðu á Alþingi  dag. Hann sagði einnig:

„Hvað gerði hæstvirt ríkisstjórn gagnvart þessu? Ekkert. Það var ekkert gert með álitsgerð fjármálaráðs. Nú koma menn með þessi fjárlög, segja sömu hlutina og þeir sögðu síðast þegar þeir lögðu fram fjárlög. Þetta eru sömu orðin. Gekk það eftir sem hæstv. ríkisstjórn sagði síðast? Nei. Við sjáum það í framkvæmd fjárlaga. Eina lausn þessarar ríkisstjórnar — og þar eru endalausir möguleikar að því er virðist — er að hækka skatta og hækka gjöld. Það sem hún var kosin til, virðulegur forseti, var að lækka vexti, það var að lækka verðbólgu. Það er öllum ljóst, virðulegur forseti, sem hlustuðu hér á hæstvirtan ráðherra að þessi ríkisstjórn hefur gefist upp á því verkefni. Það eru mjög slæmar fréttir fyrir almenning og venjulegt fólk í landinu.“

Hér má lesa alla ræðu Guðlaugs Þórs.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: