Mynd: Ívar Sæland.

Stjórnmál

Ríkt fólk kemst upp með að borga ekki fyrir þjónustuna sem það þó nýtir

By Miðjan

May 05, 2021

„Skatttekjur eru helstu tekjur borgarsjóðs en fjármagnseigendur eru undanþegnir greiðslu útsvars og greiða því ekki í sameiginlega sjóði borgarinnar. Ríkt fólk á ekki að komast upp með að greiða ekki fyrir uppbyggingu í borginni og þá þjónustu sem það nýtir. Sveitarfélög geta ekki lagt á skatta án laga frá Alþingi en tillaga sósíalista um að skoða þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar í september 2019. Henni var síðar vísað til Sambands íslenskra sveitarfélaga en ekkert hefur enn komið úr þeirri vinnu,“ svo bókaði Sanna Magdalena Mörtudóttir Sósíalistaflokki á síðasta fundi borgarstjórnar.