Greinar

Rísum upp, núna

By Miðjan

March 04, 2024

Gunnar Smái skrifaði:

Útlendingaandúð, rasismi og Islamófóbía er smitandi farsótt. Og banvæn. Þetta er helsta kveikjan að hryðjuverkum, ofbeldi og ódæðisverkum í okkar heimshluta, dregur úr lífsgæðum og afli samfélagsins og veldur meiri skaða en flestir sjúkdómar. Þegar rasismi gýs upp, eins og nú er raunin á Íslandi, verðum við að bregðast við. Annars mun hann slíta sundur samfélagið og valda stórkostlegum skaða. Fólk sem ekki kærir sig um samfélag haturs og heiftar verður að rísa upp. Núna.