Uppsagnir:
Bjarki Hjörleifsson skrifaði:
„Það er eitthvað kunnuglegt við það sem er að gerast í Reykjavík.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar hefur á örfáum mánuðum fækkað stöðugildum hjá borginni um 130. Í dag bættust við 50 beinar uppsagnir og tæplega 74 stöðugildi hverfa. Allt er þetta gert undir merkjum „hagræðingar“, „einföldunar“ og þess að „framlínuþjónusta verði varin“.
Það orðfæri þekkjum við líka úr fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þar á sömuleiðis að hagræða, fækka stöðugildum og verja framlínuna. Ríkið og Reykjavíkurborg eru auðvitað ekki sami vinnuveitandinn og aðgerðirnar ekki þær sömu, en hugmyndafræðilegu líkindin eru algjör. Enda verður ekki fram hjá því litið að sama nýfrjálshyggjujarganið birtist hvar sem Viðreisn kemur að hagstjórninni, hvort sem að er hjá borg eða ríki. Ásýnd flokksins hefur villt um fyrir mörgum, enda birtist hann oft sem einhvers konar miðjuflokkur en er þegar öllu er á botninn hvolft bara hefðbundinn hægriflokkur með sömu hagstjórnarkreddurnar og Sjálfstæðisflokkurinn.
En það er ekki bara niðurskurðurinn sjálfur sem vekur furðu heldur líka aðferðin. Ef þú hefur haft nær fimm mánuði til að ákveða hvar og hvernig eigi að fækka starfsfólki, hvers vegna þarf þá að afhenda fimmtíu manns uppsagnarbréf á einum degi, eins og borgin sé korter frá því að leggja inn beiðni um greiðslustöðvun? Þetta er ómanneskjuleg framganga og ég á erfitt með að sjá vægðarleysið sem nokkuð annað en hluta af þeirri aðferð sem nýr meirihluti í borginni hefur valið sér enda er það ekki óhjákvæmilegur fylgifiskur niðurskurðarins heldur hluti af pólitískri sviðsetningu meirihlutans.
Til að bæta gráu ofan á svart ræddi borgarstjóri síðan um misnotkun á veikindarétti í Kastljósinu. Það er vert að spyrja hvort það sé rétt forgangsröðun að hjóla í sjálfsögð réttindi launafólks og kasta um leið rýrð á starfsfólk borgarinnar. Væri ekki nær að skoða hvað veldur veikindunum áður en grunsemdum um starfsfólkið er sáð, og jafnvel leita annarra leiða til að stoppa í gatið en að nota „lata“ borgarstarfsmenn sem blóraböggul fyrir úrelta hugmyndafræði?
Mæli síðan með lestri þessarar greinar frá fulltrúum Vinstrisins!“