Stjórnmál

Samfylkingin mælist nú sem áður stærst í öllum kjördæmum

By Miðjan

October 03, 2025

Kratinn, vefrit Samfylkingarinnar, fjallar meðal annars um fylgi flokka, einkum og sér í lagi um fylgi Samfylkingarinnar:

„Nýr Þjóðarpúls Gallup sýnir Samfylkinguna, áfram sem áður, sem langstærsta flokk landsins með 34 prósent fylgi. Tíu mánuðum eftir síðustu kosningar er samanlagt fylgi þeirra flokka sem mynda ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur 53,5 prósent og 62 prósent þjóðarinnar segjast styðja þá stjórn. Til samanburðar má nefna að tíu mánuðum eftir kosningarnar 2021 mældist stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur undir 49 prósentum, stuðningur við ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sem náði ekki að sitja í nema níu mánuði árið 2017 endaði í 30,9 prósentum og stuðningur við ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar datt úr 63 í 38 prósent á fyrstu tíu mánuðunum eftir að hún tók við eftir kosningarnar 2013.
Líkt og síðustu mánuði þá er Samfylkingin stærsti flokkurinn í öllum kjördæmum landsins, hjá öllum aldurshópum, öllum menntunarstigum og öllum tekjuhópum. Hún er líka stærsti hópurinn hjá bæði konum og körlum.

Mest er fylgið í kjördæmi formannsins, Reykjavík norður, þar sem 43,1 prósent kjósenda segjast styðja Samfylkinguna. Það er mjög hátt í hinu Reykjavíkurkjördæminu líka, tæplega 36 prósent, en líkt og oft áður er það fylgið í Norðausturkjördæmi sem vekur mikla athygli. Samfylkingin var vissulega stærsti flokkurinn þar í kosningunum í fyrra með 21,3 prósent fylgi en hefur nú mjög stöðugt mánuðum saman mælst með yfir 36 prósenta fylgi þar. Á milli mánaða eykst fylgið mest í Norðvestur þar sem það er komið upp í 29 prósent. Í Kraganum segist þriðjungur kjósenda ætla að kjósa Samfylkinguna og í Suðurkjördæmi njótum við stuðnings tæplega 26 prósent aðspurðra.“