Stjórnmál

Samfylkingin sækir fylgi til Framsóknar og Pírata

By Miðjan

April 04, 2023

Stjórnmál Gunnar Smári skrifaði á vef Samstöðvarinnar:

Samfylkingin mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í mars-könnun Gallup. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna hjá Gallup frá kosningum. Ríkisstjórnarflokkarnir fengu þá 54,3% atkvæða en mælast nú með 39,3%. Frá því fylgi Samfylkingar fór að vaxa í sumar hafa Framsókn og Píratar misst mest fylgi.

Ef við stillum niðurstöðunum upp í þingmannafjölda þá er niðurstaðan þessi (innan sviga breyting frá núverandi þingheimi, eftir flokkaflakk):

Ríkisstjórn:Sjálfstæðisflokkur: 15 þingmenn (-2)Framsóknarflokkur: 6 þingmenn (-7)Vg: 4 þingmenn (-4)Ríkisstjórn alls: 25 þingmaður (-13)

Hin svokallaða frjálslynda miðja:Samfylkingin: 16 þingmenn (+10)Píratar: 6 þingmenn (óbreytt)Viðreisn: 6 þingmenn (+1)Hin svokallaða frjálslynda miðja: 28 þingmenn (+11)

Ný-hægri andstaðan:Miðflokkurinn: 4 þingmenn (+2)Flokkur fólksins: 3 þingmenn (-3)Ný-hægri andstaðan: 7 þingmenn (-1)

Stjórnarandstaða utan þings:Sósíalistaflokkurinn: 3 þingmenn (+3)

Framsóknarflokkurinn hefur ekki mælst veikari á kjörtímabilinu, er aðeins með 9,9% í könnuninni. Píratar lækka mest milli mánaða.

Þessir tveir flokkar hafa tapað mestu frá í sumar, þegar fylgi Samfylkingarinnar tók að vaxa. Ef við skoðum fylgsibreytingarnar frá því í júlí þá eru þær þessar:

Þessir bæta við sig:Samfylkingin: +11,4 prósenturMiðflokkur: +1,9 prósentur

Þessi standa í stað:Viðreisn: +0,5 prósenturSjálfstæðisflokkur: +0,2 prósenturSósíalistar: -0,2 prósenturFlokkur fólksins: -1,0 prósentur

Þessir missa fylgi:Vg: -1,5 prósenturPíratar: -5,6 prósenturFramsókn: -5,5 prósentur

Sókn Samfylkingarinnar er því fyrst og fremst tilfærsla á fylgi á miðjunni.