Stjórnmál:
Þórður Snær Júlíusson skrifaði:
„Framsókn seldi landsmönnum partístemningu án innihalds árið 2021 en skildi eftir óleyst verkefni og ófjármögnuð loforð. Nú situr flokkurinn í stjórnarandstöðu og reiknar kostnaðinn af því að aðrir taki til eftir hann. Til þess notar hann reiknivél sem ákveður neysluvenjur heimilanna, gerir ráð fyrir gjaldahækkunum sem þegar hefur verið samið um að lækka og reiknar húsnæðislán án þess að vita lánstímann.
Niðurstaðan er svo kynnt sem nákvæmur kostnaður almennings. Þetta er sami gamli Framsóknarflokkurinn: áferð umfram efni, auglýsingar umfram ábyrgð og engin svör við því hvernig eigi að borga fyrir loforðin. Partístofan er lokuð, en reikningurinn fyrir gleðina er því miður enn að lenda hjá þjóðinni.“
Þetta er hluti af vikulegri grein Þórðar Snæs Júlíussonar á Kjarnyrt. Hér er hægt að lesa greinina alla: