Greinar

Samkeppniseftirlitið uppfullt af sannfæringu um eigið ágæti

By Miðjan

September 12, 2026

Úr leiðara Moggans:

Leiðari Moggans í dag fjallar meðal annars um Samkeppniseftirlitið, sem leiðarahöfundur segir vera „…uppfullt af sannfæringu um eigið ágæti og leggi í ýmsa furðulega leiðangra, sem ef til vill væru eðlilegir í stórum hagkerfum, en eru glórulausir í því litla hagkerfi, sem er að finna á Íslandi.

Stofnunin sendi í byrjun mánaðar út ársskýrslu fyrir árið 2025. Þar er greint frá hinum ýmsu verkefnum hennar, en einnig er mikill þungi lagður í umfjöllun um að hún sé fjársvelt. Það er skemmtileg tilviljun að hún skuli einmitt koma fram þegar á að fara að fjalla um fjárlagafrumvarp næsta árs.

Sérstaklega er til þess tekið að framlög til eftirlitsins hafi lækkað sem nemi um 20% á föstu verðlagi á síðasta áratug á meðan umsvif í efnahagslífinu hafi aukist um 35 til 40 af hundraði. Það hlýtur að vera þrátt fyrir aukafjárveitingar, sem tíndar eru til fyrir tvö síðustu ár.

Samkeppnisstofnun hefur látið greina mannaflaþörf hjá sér. Niðurstaða þeirra greiningar er að eftirlitið þyrfti 42 ársverk til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Starfsmenn hafi í fyrra hins vegar verið álíka margir og gert hafi verið ráð fyrir fljótlega eftir stofnun árið 2005, eða 22 fastráðnir og ársverkin 24,5.

Ekki er nóg með þetta ákall um fleira fólk og meiri peninga. Nokkrum dögum eftir að skýrslan kom út barst tilkynning frá Samkeppnisstofnun um ábata neytenda og fyrirtækja af íhlutun hennar undnfarinn áratug. Þar segir að ávinningurinn af íhlutun vegna samráðs, misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og samkeppnishamlandi samruna hafi að meðaltali numið 9,9 til 16,7 milljörðum á ári 2016 til 2025. Ábatinn er samkvæmt stofnuninni fjórtán til tuttugu og fjórföld þau framlög, sem henni voru veitt á þessu tímabili.“