Við erum einfaldlega búin að sjá í gegnum áróðurinn um brauðmolana og við erum búin að sjá í gegnum hina ógeðslegu væntingastjórnun á lágtekjuhópana sem hér hefur verið stunduð og hefur nú umbreyst í það að íslenska hótana-mafían hefur fengið frítt spil til að hræða og þvaðra.

Mannlíf

Samtök iðnaðarins afneita Sósíalistum

By Miðjan

August 28, 2021

Samtöl iðnaðarins, til heimilis að Borgartúni 35, efna til samkomu með pólitískum frambjóðendum. Þrátt fyrir að mælast ótrúlega vel í öllum skoðanakönnunum er sósíalistum ekki boðið. Kannski sakna þeir þess ekki. Veit það ekki.

Aulalegt er það hjá Samtökum iðnaðarins að bjóða bara vinveittum stjórnmálamönnum. Ekki þeim sem hugsanlega spyrja erfiðra spurninga eða svara á annan veg en stífpressaðar skyrturnar vilja heyra – og sjá.