Sanna Magdalena: „Píratar hafa mikið lagt upp úr gagnsæi og lýðræðislegum vinnubrögðum í sinni stefnu svo ég er nokkuð vongóð um að fá stuðning þaðan.“

Fréttir

Sanna boðar sósíalista til fundar í kvöld

Eiga sósíalistar að taka þátt í meirihluta eða ekki.

By Miðjan

May 29, 2018

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokskis, boðar alla sósíalista til fundar um stöðuna í borgarmálum.

Á Facebooksíðu flokksins segir: „Í gærkvöldi voru málin reifuð en nú er komið að því að tak afstöðu um hver staða borgarfulltrúa sósíalista verður á kjörtímabilinu. Eiga sósíalistar að semja sig inn í meirihlutasamstarf um að reka kerfið eða eiga þeir að byggja upp starf meðal hinna valdalausu í Reykjavík og sækja með þeim á kerfið?“

Fundur Sönnu hefst klukkan 20 í Hlutverkasetri Borgartúni 1, 2. hæð (gengið inn sjávarmeginn).