Fréttir

Sanna og Líf eru til ef róttæk félagshyggjusjónarmið verða í öndvegi

By Aðsendar greinar

February 08, 2025

Yfirlýsing frá borgarfulltrúum Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna.

Frá upphafi þessa kjörtímabils höfum við staðið þétt saman við að veita þeim meirihluta sem nú hefur sprungið í loft upp kröftugt aðhald frá vinstri. Við höfum gagnrýnt hann harkalega þegar þörf hefur verið á, en einnig lagt góðum málum lið.

Að okkar mati er ekki ákall í samfélaginu eftir auknu vægi hægriaflanna við stjórn Reykjavíkur, afla sem tala fyrir einkavæðingu og niðurskurði sem bitnar ávallt á almenningi. Þvert á móti er mikilvægt að róttæk félagshyggjusjónarmið komi þar skýrt að málum.

Það er fullur vilji okkar til að vinna sameiginlega að því marki með öllum mögulegum hætti. Við erum til í slaginn að taka á brýnum verkefnum svo sem í húsnæðismálum og skólamálum. Allar ákvarðanir um framtíð Reykjavíkur ætti að taka á grunni lýðræðis og hugsjóna um jöfnuð og félagslegt réttlæti, en ekki með hrossakaupum í bakherbergjum til að svala persónulegum metnaði. Í því skyni að koma á ábyrgri forystu fyrir Reykjavík lýsum við okkur reiðubúnar til samtals við þá flokka í borgarstjórn sem eru sama sinnis.