Einn fyrrverandi forseti sem hefur afar umdeilda afrekaskrá, svo ekki sé sterkara að orði komist.
Þröstur Ólafsson skrifaði:
„Það er margt sem vakið hefur athygli mín í hamaganginum í tilefni af atkvæðagreiðslunni um heimild til viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Það fyrsta að áráðurmeisturum Nei-ista skyldi takast að snúa atlögunni frá umræðuheimild yfir í aðildarviðræður. Það vakti upp þjóðernisdrauginn. Tilvísun til hans hefur löngum reynst ráðandi stéttum árangurrík skírskotun.
Í annan stað voru fjármunir stríðandi fylkinga afar ójafnir. Annars vegar virtist Nei-ið hafa í ótæmandi sjóði að sækja, meðna Jáið gat ekki leyft sér neitt nema lágmarks keyrslu á samfélagsmiðlum. Öllum sem vildu var ljóst hvaðan þeir peningar komu. Það eitt hefði átt að vekja athygli marga.
Sem þriðja atriði eru leikendurnir, því ekki var kosið um frambjóðendur. Vaktir voru til leiks áhrifamenn úr fortíðinni, sem þjást greinilega af athyglissýki. Þjóðin hafði hafnað þeim og vissi um afglöp þeirra í embættum. Einn fyrrverandi forseti sem hefur afar umdeilda afrekaskrá, svo ekki sé sterkara að orði komist. Auk fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðanda, sem það helst hafði afrekað að leggja eigin flokk í rúst vegna óstöðvandi valdsækni sinnar. Athyglissýki beggja var eftirtektarverð.
Sem fjórða þátt skal nefna það hlutverk sem leikstjórnin hafði úthlutað formanni Eflingar. Hún, formaðurinn er kona, hafði í viðtali fyrr á árinu vakið athygli á því að fjölmiðlar hefðu lítinn áhuga á viðtölum við sig. Leikstýrendur sáu þarna viljugan meðhlaupara sem sannanlega þjáðist af opinberu eftirtektarleysi. Sviðsljósið hafði forðast hana. Þegar hún mærði krónuna sem björgunahring almennings brustu allar varnir hennar. Þau ummæli báru annaðhvort vott um ófyrirgefanlega fáfræði eða meiri pólitískri strípihneigð en vænta mátti af forystumanni láglauna fólks. Þegar hún sat brosandi við hlið fyrrverandi „pyntara“ sínum, á baráttufundi greiddum af auðmönnum, ofbauð hún öllum.
Mörg önnur uppákoma var athyglisverð, sem gera má ráð fyrir að beitt verði í auknum mæli síðar. Leikstjóra Nei-sinna má hrósa fyrir gott handverk enda með ótæmandi fjármagn að baki sér.“