Fréttir

SDG heggur í Sjálfstæðisflokk og Framsókn

By Miðjan

April 01, 2019

Styrmir Gunnarsson er í þeim hópi, í Sjálfstæðisflokksins, sem berst hvað harðast gegn þriðja orkupakkanum. Það sem Styrmir Gunnarsson stangast fullkomlega á orð Páls Magnússonar, í Silfrinu í gær. Páll sagði þar að búið væri að hefla alla annmarka af málinu.

„Sterk andstaða Miðflokksins við Orkupakka 3 frá ESB, þýðir að stjórnarflokkarnir þurfa að huga að fleiru en eins konar uppreisn grasrótarinnar í eigin röðum, aðallega í Sjálfstæðisflokknum og að einhverju leyti líka í Framsókn,“ skrifar Styrmir.

Hann hefur áður bent á að margir flokksmenn Sjálfstæðisflokks hugsi sér til hreyfings. Og kjósi frekar Miðflokkinn en sinn gamla flokk.

Styrmir: „Það er augljóst af því, sem fram kom hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins á flokksráðsfundi í gær, að Miðflokkurinn ætlar sér að ná til þeirra kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem eru ósáttir við þá afstöðu, sem forystusveitir þessara flokka hafa tekið til málsins.“

Styrmir rökstyður mál sitt, til dæmis svona: „Eins og áður hefur verið bent á hér á þessum vettvangi er ekki fjarri lagi að segja, að Miðflokkurinn sé að taka sér stöðu til hægri við fyrrnefndu flokkana tvo, sem minnir á Danska þjóðarflokkinn, sem skapaði sér slíka stöðu gagnvart danska íhaldsflokknum með þeim árangri, að sá flokkur er ekki svipur hjá sjón, í raun orðinn smáflokkur.“

Og afleiðingarnar, hverja geta þær orðið:

„Það má vel vera að forystusveitir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks telji sig geta hundsað samþykktir æðstu stofnana þessara flokka svo og tilfinningar grasrótarinnar en sýni þeir kjósendum flokkanna almennt sömu fyrirlitningu geta afleiðingarnar orðið víðtækari.“