Fréttir

Seðlabankinn ver fyrst og femst fjármagnseigendur og bankana

By Miðjan

February 08, 2023

Ragnar Þór Ingbólfsson skrifaði:

Stýrivextir voru hækkaðir enn og aftur og hafa ekki verið hærri í 13 ár. 12 mánaða verðbólga er 9,9% og er drifin áfram af húsnæðisverði, erlendum hækkunum og gjaldskrárhækkunum hins opinbera eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Verðbólga í janúar var að mestu vegna gjaldskrárhækkana og áhrifa hærri stýrivaxta á afborganir lána.

Seðlabankinn ber megin ábyrgð á heimatilbúinni fasteignabólu og reynir að sporna gegn erlendum verðhækkunum með stýrivaxtahækkunum á litla Íslandi. Galið!!

Staðreyndirnar tala sínu máli og ef Seðlabankinn hafði einhvern trúverðugleika þá er hann endanlega farinn, ef hann var þá nokkur. Nýjar og nýjar skýringar koma í hvert skipti sem vextir hækka og nú eru það launahækkanir.

Seðlabankinn er fyrst og fremst að verja fjármagnseigendur og bankana. Og það staðfesta allar tölur. Bankarnir voru með yfir 133 milljarða í hreinar vaxtatekjur á síðasta ári eða 27 milljörðum meira en árið á undan. Árið 2023 hlýtur svo að slá öll fyrri met.

Ég hvet ykkur til að skoða meðfylgjandi gröf sem útskýra vel helstu áhrifaþætti 12 mánaða verðbólgu og verðbólgunnar í janúar.