Segir Evrópusambandið undirbúa stórstríð gegn Rússlandi, einu helsta kjarnorkuveldi heims

Friðrik Daníelsson ritstjóri vefsíðunnar frjalstland.is skrifaði grein sem Mogginn birtir í dag. Friðrik er viss um að framundan sé stríð Evrópu gegn Rússlandi. Fyrri hluti þess sem hér er birtur úr grein Friðriks og seinni hluti er frá lokum greinar hans.
„Íslendingar eru stundum seinheppnir. Nú sitjum við uppi með stjórnvöld sem ætla að sækja um aðild að sambandi sem einmitt núna er að búa sig undir að fara í stórstríð við eitt helsta kjarnorkuveldi heims. Í stað þess að sýna ábyrgð og bíða þar til stríðsæsingarnar hefur lægt ætlar ríkisstjórn Íslands nú að leita eftir aðild að Evrópusambandinu sem jafngildir umsókn um aðild að stríði. Ísland er reyndar nú þegar látið borga milljarðatugi í Úkraínustríðið en verður skyldugt til að taka beinan þátt í stríði sem mun leggja herskyldu á Íslendinga.“
Og hér er meðal annar rætt um innrásarstríð Rússa í Úkraníu:
Vopnaframleiðendur þenjast nú út og framleiða meira af vopnum í stríðið.
„Evrópusambandið og Bretland eru nú að vinna að yfirtöku og útvíkkun á stríðinu sem hefur að mestu verið rekið af Bandaríkjunum. Evrópusambandið ætlar að setja strax 200 milljarða evra í stríðið, fjármagn sem kemur frá Rússum með því að nýta frystar eignir þeirra. ESB hefur stofnað 800 milljarða evra sjóð til að fjármagna stríðið.
Vopnaframleiðendur þenjast nú út og framleiða meira af vopnum í stríðið. Stærsti hergagnaframleiðandi ESB, Rheinmetall, græðir nú stórfé, hlutabréfaverðið hefur tífaldast á nokkrum árum, ný skotfæraverksmiðja þeirra, nýlega opnuð í Þýskalandi, verður sú stærsta í ESB. (Merz kanslari vann fyrir Black Rock sem á hlut í Rheinmetall og stórar landeignir í Úkraínu.) Þýskaland hefur nú gert hernaðaráætlun, Operation Deutschland, um beint stríð gegn Rússlandi þar sem reiknað er með 800.000 NATO-hermönnum.
Umræðan um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur lent í aukaatriðum þar sem undanþágur um eitt og annað eru aðalumræðuefnið en aðalatriðunum er haldið utan umræðunnar.
- Það fást engar undanþágur frá forystu sambandsins.
- Það fást engar undanþágur frá stríði sambandsins.“