Stjórnmál

Segir ráðherra fá auðan tékka á fullveldi Íslands

By Miðjan

May 29, 2026

Alþingi: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur flutt margar ræður vegna þjóðaratkvæðisgreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Hér er stutt ræða frá SDG:

„Síðast þegar ráðist var í aðildarviðræður við Evrópusambandið, þær viðræður sem nú er reynt að endurlífga, voru menn sendir af stað með ákveðin rauð strik, eins og það var kallað, skilyrði frá þinginu um hvað mætti gera. Hér fáum við aldeilis staðfestingu á því að meiri hlutinn á Alþingi leggur ekki í að leggja hæstvirtum utanríkisráðherra línurnar um áframhaldandi eða nýjar viðræður og gerir sér þá væntanlega grein fyrir því að það er ekki raunhæft að hæstvirtur ráðherra geti staðið við slíkar kröfur. Með öðrum orðum er hér með staðfest af hálfu Alþingis að svari menn já í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu þá séu þeir einfaldlega að gefa hæstvirtum utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, auðan tékka á fullveldi Íslands í viðræðum við Evrópusambandið.“