- Advertisement -

Segir undirbúning olíuleitar hafa staðið í 500 milljón ár / vill hefja olíu- og gasleit

Alþingi:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

„Ég mæli hér aftur fyrir þingsályktunartillögu um leit að olíu og gasi. Þetta mál á sér mjög langan aðdraganda. Undirbúningur hefur staðið í 500 milljón ár.“ 

Þetta sagði Sigmundur Davíð í þingræðu. Þar mælti hann fyrir vilja sínum um gas- og olíuleit. Síðar í ræðunni sagði Sigmundur:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Svo eru það þau rök að við eigum einfaldlega að láta þetta liggja til að leggja okkar af mörkum í umhverfismálum. Menn hljóta nú aðeins að velta þessu fyrir sér eða endurskoða þegar þeir skoða staðreyndirnar. Notkun á olíu og gasi hefur vaxið jafnt og þétt hvað sem líður nýjum orkugjöfum. Það er óhjákvæmilegt og ég tel að enginn efist um það að notkunin muni aukast jafnt og þétt um fyrirsjáanlega framtíð. En það er æskilegt að nota meira af olíu og gasi frekar en kol. Það er ein besta leiðin til að draga úr mengun og losun gróðurhúsalofttegunda.

Viljum við Íslendingar fórna þessu tækifæri okkar og láta einfaldlega ríki á borð við Rússland, Sádi-Arabíu, Venesúela og Katar sjá um þetta, vera þeim háð? Í öllu þessu tali um breytta heimsmynd, væri þetta ekki eitt sterkasta framlag sem Ísland gæti komið með til þess að styrkja stöðu Vesturlanda og öryggi íbúa þeirra og ekki hvað síst og alveg sérstaklega Íslands? Þetta myndi hafa gríðarleg áhrif fyrir landið allt og ekki hvað síst í Norðausturkjördæmi. Bara leitin myndi strax leiða af sér gríðarlega fjárfestingu og uppbyggingu. Menn þekkja þessa sögu frá Noregi, t.d. Stafangri, sem er núna ein ríkasta borg Evrópu, sem þjónustar þennan iðnað. Þetta getum við líka séð gerast hér og farið úr vörn í byggðamálum í stórkostlega sókn.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: