Ljósmynd: Alexander Grey/Unsplash.com

Greinar

Selja sjálfum sér fiskinn á undirverði

By Miðjan

May 25, 2026

Fiskveiðar: Þórólfur Júlían Dagsson skrifaði:

„Íslenska ríkið heldur áfram að stimpla milliverðlagningu stórútgerðarinnar.

Þeir selja sjálfum sér fiskinn á undirverði. Veiðigjöldin lækka. Skattarnir lækka. Þjóðin, sem á fiskinn, situr eftir með brotabrot. Þetta er ekki samsariskenning. Ríkið sjálft staðfesti það í greinargerð með veiðigjaldafrumvarpinu 2025.

Þetta breytir eftirfarandi:

Nú er nóg komið. Við setjum af stað málskotssjóð. Kæra fer inn hjá ESA í Brussel, Eftirlitsstofnun EFTA. Þeir hafa heimild til að krefja ríkið um endurheimtu ólögmætrar aðstoðar.

Ef útgerðin getur ekki látið okkur í friði í okkar kerfi, þá svörum við fyrir okkur. Með lögum.“