Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins, skrifaði:
Á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í síðustu viku ræddi utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ekkert um fyrirhugaða hækkun á tollum Evrópusambandsins á íslenskar iðnaðarvörur, þar á meðal framleiðslu járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Í samskiptum mínum við aðra fulltrúa minnihlutans í nefndinni hefur þessi skilningur verið staðfestur.
Í viðtölum við fjölmiðla í dag hefur utanríkisráðherra lýst málinu á þann hátt sem samræmist ekki því sem fram fór á fundi nefndarinnar. Slík framsetning ráðherrans vekur upp áleitnar spurningar um orðræðu og upplýsingagjöf til þings og þjóðar.
Það vekur jafnframt furðu, hafi utanríkisráðherra rætt þetta mál sérstaklega við Ursúlu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að ekkert skuli minnst á það í minnisblaði sem ráðherra sendi nefndarmönnum fyrir fundinn. Enn furðulegra er að málið hafi ekki verið rætt á fundi utanríkismálanefndar, þar sem það hefði í raun átt að vera eitt helsta umræðuefnið í ljósi þess hversu gríðarlegir hagsmunir eru undir.
Þetta mál kallar því á frekari útskýringar frá utanríkisráðherra.