Stjórnmál

Sjálfstæðisflokkurinn brennir sig

By Miðjan

February 26, 2026

Stjórnmál: Ragnar Önundarson var gestur á Samstöðinni í gærkvöld. Hann var lengi félagi í Sjálfstæðisflokknum. Þegar talið barst að stöðu Sjálfstæðisflokksins sagði Ragnar flokkinn sjálfan hafa nánast unnið að því að verða minni en hann var.

Ragnar nefndi helst að bæði nýr formaður og varaformaður hafi bæði verið varaformenn Samtaka atvinnulífsins og svo formenn annarra hagsmunaafla. Ragnar telur að þetta nána samband hafi skaðað flokkinn.

Að auki benti Ragnar á að nú sé fyrrverandi formaður, til langs tíma, Bjarni Benediktsson að taka við sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ragnar telur að það verði flokknum ekki til gagns.

Hér er hægt að hlusta og horfa á þátt gærkvöldsins.