Sjálfstæðisflokkurinn er hinn stóri sigurvegari
„Pólitískt séð er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er hinn stóri sigurvegari kosninganna i gær. Hann efndi til gífurlegrar áróðursherferðar – það þarf ekki mikið að efast um að Áfram Ísland var Sjálfstæðisflokkurinn og fylgihnettir (gamla Heimssýn var alveg skilin út undan).“
Þetta segir í Facebookgrein Egils Helgasonar.
„Flokkurinn stóð sjálfur fyrir miklum símhringingum og sms-sendingum og það var ekki mikið mark á því tekið þótt einhverjir flokksmenn spyrðu hvort þetta byggði á einhverri flokkssamþykkt. Í fyrsta lagi tókst Sjálfstæðisflokknum að koma höggi á ríkisstjórnina þannig að hún hefur veikst til muna. Nú heyrast kröfur um afsögn. Í öðru lagi tókst að hefna fyrir ófarirnar í veiðigjaldamálinu í fyrra. Í þriðja lagi er flokkurinn búinn að eignast álitlegt foringjaefni, Halldór Benjamín. Og í fjórða lagi tók hann forystu á hægri vængnum með því að gjörsamlega yfirskyggja Miðflokkinn og virka harðari en hann – Miðflokkurinn heyrðist varla né sást í kosningabaráttunni. Þannig að nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn úr nógu að moða næstu misserin – eftir erfiða tíð hefur hann gert öflugt kombakk.“