Samsett mynd.

Stjórnmál

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með sama fylgi og Davíð fékk á sínum tíma, 13,7%

By Miðjan

February 27, 2026

Stjórnmál: „Nú er hún Snorrabúð stekkur. “ Staða Sjálfstæðisflokksins er ömurleg. Mælist nú með 13,7 prósenta fylgi. Sem er upp á hár sama fylgi og Davíðs Oddsson fékk í forsetakosningunum um árið.

Hin nýja forysta flokksins getur ekki annað en líta í eigin barm. Hvorki formanni né varaformanni hefur gengið vel í sínum embættum. Sjálfstæðisflokkurinn er kominn fram á ystu brún. Sem er hættuleg staða.

Samfylkingin og Miðflokkurinn eru með mesta fylgið ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar Prósents sem framkvæmd var dagana 21. janúar til 16. febrúar.

Þátttakendur voru spurðir: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?

Af þeim sem tóku afstöðu myndu 30,1% kjósa Samfylkinguna, 19,6% Miðflokkinn, 13,7% Sjálfstæðisflokkinn, 13,5% Viðreisn, 7,7% Flokk fólksins, 5,9% Framsóknarflokkinn, 3,6% Pírata, 3,3% Vinstri græn 2,4% Sósíalistaflokkinn og 0,2% Lýðræðisflokkinn.

Ljóst er að fleiri glíma við vanda en Sjálstæðisflokkur, eins sjá má hér að ofan og á gtafinu hér að neðan.

Hér sést svart á hvítu að „systkinaflokkarnir“ Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur eru samtals með um rétt um 35 prósenta fylgi. Hins vegar fá Samfylkingin og Viðreisn tæplega 44 prósenta fylgi. Þriðji stjórnarflokkurinn, Flokkur fólksins mælist með 7,7 prósenta fylgi. Þannig að ríkisstjórnarflokkarnir halda meirihluta, sem þó stendur mjög tæpt.