Greinar

Sjómannadagurinn verður æ hjárænulegri

By Miðjan

June 08, 2026

Sjómannadagurinn Lýður Árnason skrifaði þessa fínu grein:

„Sjómannadagur er dagur þeirra og áralöng hefð hjá fiskveiðiþjóð. Í mínum huga verður þessi dagur æ hjárænulegri.

Sjómönnum hefur fækkað og þeir eru hlunnfarnir. Möguleikar þeirra til sjálfstæðrar sjósóknar eru engir. Sjómenn geta ekki haft sjálfstæðar skoðanir, þá eru þeir reknir.

Fiskveiðiþjóðin er hnípin. Hún á fiskimiðin samkvæmt lögum en þegar veiðiréttinum er úthlutað á hún yfir höfði sér málsóknir ef hún úthlutar ekki rétt samkvæmt skoðunum þeirra sem telja veiðiréttinn eiga heima í eigin erfðaskrám.

Þessi dagur sjómanna ætti því ekki að markast af hátíðahöldum heldur sólarhringsþögn til áminningar um það sem farið hefur úrskeiðis. Síðan á að ganga í málin.“