Aðsent:
Kæru vinir!
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 2. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, sem fram fer 24. janúar næstkomandi.
GÆÐASÓKN Í MENNTAMÁLUM
Ég er eldheitur jafnaðarmaður og hef sérstaklega beitt mér fyrir umbótum í menntamálum.
Ég vil að Samfylkingin setji í forgang að borgin endurheimti forystuhlutverk sitt í menntamálum og leiði saman ríki, borg, fagfélög og háskóla í nýrri gæðasókn í menntamálum þar sem við aukum stuðning við kennara á vettvangi til að mæta betur fjölþættum þörfum barna og nýtum í auknum mæli rannsóknir og gagnreyndar aðferðir til að auka færni nemenda í lestri, stærðfræði og náttúruvísindum.
AÐRAR ÁHERSLUR
Að auki mun ég leggja áherslu á þessi umbótamál á komandi misserum:
ÖFLUG HÚSNÆÐISUPPBYGGING
Fjölbreytt húsnæðisuppbygging og öflugar almenningssamgöngur, með sérstakri áherslu á húsnæði á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og efnaminni borgarbúa.
SJÁLFBÆR ATVINNUSTEFNA OG NÁTTÚRUVERND
Uppbygging grænnar sjálfbærrar atvinnustefnu með djúpnýtingu jarðvarma, sólarorku, vindorku og fleiri vistvænna orkugjafa á sama tíma og gengið er varlega og af virðingu um auðlindir náttúrunnar. Markvisst verði unnið að samdrætti í losun og kolefnishlutleysi fyrir 2040.
OPNUN HREYSTILEIKSKÓLA
Fjölgum leikskólaplássum í takt við bættar starfsaðstæður og þróum nýjar lausnir eins og hreystileikskóla í samvinnu skóla og íþróttafélög, sem viðbótar valkost við þá öflugu leikskóla sem fyrir eru í borginni.
FLEIRI GRÆN SVÆÐI
Fjölga grænum svæðum og fallegt mannvænt umhverfi í skipulagi borgarinnar, þar sem götur, torg og leiksvæði eru hönnuð fyrir fólk.
TILTEKT Í BORGINNI
Skynsamlegar úrbætur og tiltekt í rekstri og stjórnsýslu borgarinnar
ALVÖRU GEÐRÆKT
Alvöru átak í að efla geðrækt barna og ungmenna
HEILSUEFLING ELDRA FÓLKS
Fjölga tækifærum eldra fólks til fjölbreyttrar hreyfingar og heilsueflingar
FJÖLMENNING SKAPAR BETRA SAMFÉLAG
Tökum betur á móti innflytjendum og fólki af erlendum uppruna með öflugri íslenskukennslu og raunverulegri inngildingu í störf og samfélagið allt.
MINNA ÓNÆÐI AF FLUGUMFERÐ
Að losna við óþarfa flugumferð af Reykjavíkurflugvelli til að draga úr ónæði fyrir íbúa og mengun
BETRI AÐSTAÐA SVIÐSLISTA
Auknum stuðningi við menningu og skapandi greinar í borginni m.a. með betri aðstöðu sviðslista.
FRÍSKUM UPP Á FJÖLSKYLDU-OG HÚSDÝRAGARÐINN
Fjölgum leiktækjum og bætum aðstöðuna í Fjölskyldu-og húsdýragarðinum.
NÝR VETRARGARÐUR
Bætt aðstaða fyrir almenningsíþróttir og heilsueflingu, m.a. með nýjum Vetrargarði í Breiðholti, nýrri aðstöðu við Ylströndina og fjölbreyttri uppbyggingu innviða til útivistar á Austurheiðum.
ÁRANGUR
Ég býð fram þekkingu mína og reynslu í borgarstjórn og á Alþingi þar sem ég hef á undanförnum árum beitt mér af kappi í menntamálum, umhverfismálum, atvinnumálum, menningar- og íþróttamálum. Meðal annars þetta:
– Uppbygging fjölda nýrra leikskóla með yfir 1.200 nýjum leikskólaplássum og bættar starfsaðstæður í grunnskólum, leikskólum og frístundastarfi.
-Aukinn jöfnuður meðal barna í borginni m.a. með hækkun frístundastyrks og Betri borg fyrir börn.
-Aukinn stuðningur við grasrótina í menningarlífi borgarinnar.
– Betri aðstaða til íþróttaiðkunar í borginni.
ÁFRAM SAMFYLKING!
Ég hlakka til kosningabaráttunnar framundan með félögum mínum og nýju fólki, hvet öll til að taka þátt í flokksvalinu og vera með í að mynda sterka liðsheild Samfylkingarinnar til sigurs í vor.