- Advertisement -

Slógu af þéttingu í Grafarvogi

„Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi,“ segir meðal annars í bókun meirihlutans í borgarstjórn, þegar ákveðið var að kalla til baka áform fyrri meirihluta um þéttingu byggðar í Grafarvogshverfum.

Sanna Magdalena, fulltrúi Vinstrisins, og stendur vaktina fyrir þau snauðari í borginni. Hún bókaði:

„Mikil þörf er á húsnæði á viðráðanlegu verði. Hluti af þróun húsnæðisuppbyggingar í Grafarvogi eru reitir þar sem fyrirhugað er að byggja upp óhagnaðardrifið húsnæði í samstarfi við óhagnaðardrifin uppbyggingarfélög og tryggja þannig fjölbreyttum tekjuhópum og tekjulágum þak yfir höfuðið og aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: