Margir verkalýðsforingjar höfðu sömu skoðun. Þeir trönuðu sér hins vegar ekki í fremstu víglínu með forystumönnum stórauðvaldsins.
Þröstur Ólafsson.
Þröstur Ólafsson skrifaði:
„Ég hef legið undir ámæli fyrir síðustu færslu mína sem snerti m.a. formann Eflingar. Það er vel. Við þurfum á gagnrýni að halda. Að öðrum kosti er þetta dýrmæta lýðræði innantóm áma. Þeir sem leika á eða sækjast eftir hlutverki á stóra sviðinu, þurfa að stíga varlega til jarðar. Við, sem sitjum í almennum sætum í salnum, höfum verið þróttlítil við að veita aðhald, gagnrýna aðalleikarana fyrir framgöngu þeirra. Leikarar fá oft niðursallandi dóma. Gera betur næst. Sá sem þetta ritar hefur ekki farið varhluta af því á starfsdögum sínum.
Gagnrýni mín á Sólveigu Önnu formann Eflingar í síðustu færslu minni, sneri aðkomu hennar á stóra sviðið. Hvernig hún kom mér þar fyrir sjónir. Hún hefur staðið sig með prýði sem formaður stéttafélags láglaunafólks. Hún hefur bætt kjör þess umtalsvert og styrkt stöðu þess í samfélaginu. Fyrir það ber að þakka.

og Guðmundur J. Guðmundsson.
Svo háværar voru raddirnar að GJG sá sig tilneyddan til að draga sig tímabundið í hlé.
En öllu eru takmörk sett, mér sem öðrum. Ég gagnrýndi ekki skoðun formannsins þótt hún væri andstæð minni. Margir verkalýðsforingjar höfðu sömu skoðun. Þeir trönuðu sér hins vegar ekki í fremstu víglínu með forystumönnum stórauðvaldsins. Þar gekk hún of langt– nei alltof langt. Þessi atkvæðagreiðsla snerist að mestu um forréttindi stórauðvaldsins. Hvort því tækist að geirnegla forréttindi sín til frambúðar. Verkfæri þeirra hefur einkum verið svikamillan íslenska krónan. Til að svo gæti orðið þurfti stórauðvaldið á að halda stuðning úr öðrum lögum samfélagsins, sem og ótakmarkað fjármagn. Það hefur þeim því miður tekist. Þegar formaður Eflingar réttlætti þátttöku sína og nærvist, með lofsorði um krónuna, myllusteininum um fætur almennings, ofbauð mér. Hlutverk hennar á vakningarfundi stórauðvaldsins sem og í sjónvarpi hneykslaði mig. Hugurinn reikaði til fyrrverandi formanna Dagsbrúnar, sem ávallt héldu sig til hlés gagnvart forystumönnum atvinnurekenda. Voru þeir þó hvorki að afli né auði hálfdrættingar við þennan hóp nú um þessar mundir. Þegar upplýst var um vináttu GJG og Alberts G. og stuðning þess síðarnefnda við heilsuferð Guðmundar J. til útlanda, ættlaði allt um koll að keyra. Svo háværar voru raddirnar að GJG sá sig tilneyddan til að draga sig tímabundið í hlé.
Verði þessi niðurstaða sem nú fékkst, í atkvæðagreiðslunni, ekki leiðrétt innan tíma, þá má íslenskur almenningur búast við því að þrengt verði að dyrum hans.“