Greinar

Sólveig Anna í framboði

By Miðjan

October 16, 2026

Alþýðusambandið:

Sólveig Anna:

„Ég býð mig fram í embætti fyrsta varaforseta ASÍ.

Sem formaður Eflingar hef ég leitt baráttu verkafólks á höfuðborgarsvæðinu síðan 2018. Ég og félagar mínir höfum tekið hvern slaginn á fætur öðrum. Verkakonur sem halda samfélaginu okkar gangandi, annast börnin okkar og gamla fólkið hafa tekið málin í eigin hendur og unnið raunverulega sigra, aðflutt fólk hefur stillt sér upp í framvarðasveit íslenskrar verkalýðsbaráttu, verkamenn og láglaunakonur hafa staðið saman hlið við hlið. Saman höfum við farið í verkföll og unnið sigra sem okkur var sagt að væru ómögulegir. Saman höfum við barist við íslenska valdastétt, tryllta af bræði yfir því að ófaglærðar konur og útlendingar dirfðust að hafa skoðanir og setja fram kröfur, og saman höfum byggt upp félagið okkar, oft undir gríðarlega erfiðum aðstæðum, lýðræðisvætt það og opnað fyrir öllum þeim sem vilja taka þátt í okkar efnahagslegu réttlætisbaráttu. Við höfum hafnað því að okkar hlutverk sé aðeins að vinna og þegja – við höfum sagt hátt og snjallt: Við erum ómissandi, okkar vinna skapa verðmætin – við krefjumst virðingar.

Ég og félagar mínir erum tilbúin til að starfa innan vébanda ASÍ. Við erum tilbúin til að setja kraftinn okkar og seigluna í þá vinnu, reynslu okkar og rödd. Í dag kemur í ljós hvort að vilji er til þess að taka því boði.

Sama hvað gerist í dag heldur barátta vinnuaflsins fyrir efnahagslegu réttlæti áfram. Ég hlakka til að standa við ykkar hlið í henni.“