Kosningar: Gunnar Smári skrifaði og reiknaði:
„Vinir Kópavogs og Píratar bjóða ekki fram að þessu sinni í Kópavogi að þessu sinni og því voru um 1/4 atkvæða á lausu og þrír bæjarfulltrúar. Segja má að samkvæmt þessari könnun Maskínu taki Samfylkingin og Miðflokkurinn þessa fulltrúa auk þess sem Sjálfstæðisflokkurinn taki einn fulltrúa af Framsókn.
Samkvæmt þessu heldur meirihlutinn þótt Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fái aðeins rúm 45% atkvæða. Þeir aðrir flokkar sem ná inn í bæjarstjórn (SCM) fá rúm 46%. Svona getur kosningakerfið verið skrítið.
Fimmti fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er síðastur inn. Næstir inn eru fjórði maður Samfylkingar, annar maður Viðreisnar, annar maður Miðflokksins og fyrsti maður Vg.
Ef við leggjum saman fylgi Sósíalistaflokksins og Vg, flokkanna sem eru með ónýt atkvæði samkvæmt þessari könnun, myndi það framboð fá einn fulltrúa og þar með fella meirihlutann því Sjálfstæðisflokkurinn myndi missa sinn fjórða mann.“