Gauti B. Eggertsson skrifaði:
„Einhver sakaði mig um persónulega árás á Katrínu Jakobsdóttur fyrir að lýsa vonbrigðum með málflutning hennar á Austurvelli. Gagnrýni á rök er ekki árás á manneskju.
Katrínu hef ég þekkt frá því hún var á táningsaldri og metið mikils allar götur síðan — fyrst sem manneskju, löngu síðar sem stjórnmálamann. Ég kaus hana til forseta. Vonbrigðin eru því mikil, og ég finn fyrir þeim persónulega. En ástæður þeirra eru málefnalegar, ekki persónulegar, og þess vegna er rétt að segja nákvæmlega í hverju þau felast. Satt best að segja eru þetta stærstu vonbrigði mín með Katrínu á öllum hennar pólitíska ferli. Af hverju?
Setningin sem hún flutti hefur verið mantra nei-sinna alla kosningabaráttuna:
Þau lúta að
aðildarskilmálunum
sjálfum.
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn.“
Þetta er gróflega villandi málflutningur og alger afbökun á kosningunni sem fer fram á morgun. Katrín á að vita betur.
Ég vil sækja um. Hvort ég vil ganga í Evrópusambandið veit ég hins vegar ekki. Það kemur aðeins til greina að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þau lúta að niðurstöðunni í fiskveiðistjórnun. Þau lúta að landbúnaðarmálum. Þau lúta að aðildarskilmálunum sjálfum. Hvort þessi skilyrði nást veit Katrín ekkert um. Um það veit enginn. Enginn hefur forsagnargildi um samninga sem ekki hafa farið fram. Eina leiðin til að komast að því er að semja.
Staðhæfing Katrínar gerir ráð fyrir að „að vilja inn“ sé skilyrðislaus afstaða — og það er sett fram án nokkurra raka. Skilyrðislaus er hún ekki hjá neinum; enginn vill inn hvað sem það kostar. Afstaða mín er skilyrt, og hún er ekki óljós fyrir það. Hún er eina skynsamlega afstaðan til samnings sem enginn hefur séð.
Fullyrðing Katrínar skilgreinir viðhorf stórs hluta þjóðarinnar út af borðinu — og túlkar fyrirfram hvert já á morgun sem já við aðild. Hún segir mér — og öllum þeim sem vilja vita hvað er í boði áður en þeir ákveða sig — að afstaða okkar sé ekki til. Annaðhvort viljum við inn, skilyrðislaust, eða við eigum engan rétt á að spyrja.
Katrín veit þetta betur en flestir. Hún greiddi sjálf atkvæði með umsókninni 2009: á móti aðild, með viðræðum, vegna þess að þjóðin ætti að fá að sjá samninginn og ráða. Það var heiðarleg og skýr afstaða. Hún er nákvæmlega afstaðan sem er á kjörseðlinum á morgun. Setningin sem hún flutti í dag segir að sú afstaða sé ekki til.
Heldur að hún
taki undir
villandi fullyrðingu…
Umsókn er ekki innganga. Norðmenn sömdu tvisvar um fullgerðan aðildarsamning og felldu hann tvisvar. Sáttmáli ESB sjálfs gerir ráð fyrir að fullgilding sé sjálfstæð ákvörðun hvers ríkis — og að hún geti verið nei.
Vonbrigðin eru því tvenn. Hin fyrri eru málefnaleg. Ekki að Katrín ætli að segja nei; það er hennar réttur og ég virði hann. Heldur að hún taki undir villandi fullyrðingu sem segir að fólk sem vill vita áður en það ákveður sig sé í raun búið að ákveða sig.
Hin síðari varða framgönguna. Vandi fylgir vegsemd hverri. Þeim sem þjóðin hefur treyst fyrir æðstu trúnaðarstörfum stendur hver hljóðnemi opinn, og þau forréttindi á að nálgast af auðmýkt og virðingu. Fyrrverandi forsætisráðherra hefði verið sæmst, í máli sem henni virðist liggja á hjarta, að setjast niður með þjóð sinni og skýra afstöðu sína vandlega, af rósemd og með rökum. Að birtast þess í stað á útifundi sem ber öll merki auglýsingastofu, með slagorð í stað raka, hrópandi „Nei og aftur nei!“ yfir mannfjöldann, eru djúp vonbrigði fyrir okkur sem höfum alltaf borið virðingu fyrir dómgreind hennar. Hrópið varð að fyrirsögn — og það lýsir inntaki ræðunnar. Slík ræða skýrir ekkert.
Já við viðræðum er ekki samþykki fyrir aðild. Það er beiðni um að fá að vita.“