
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Maðurinn sem dansaði lipurlega í glufum kerfisins virðist hafa lítinn áhuga á að aðrir sleppi undan ófrelsinu. Hann vill hafna áframhaldandi aðildarviðræðum og réttlætingin er í raun byggð á tveimur bröndurum.
„Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi þingmaður, var um árabil með lögheimili skráð á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Á meðan þáði hann greiðslur vegna húsnæðis- og dvalarkostnaðar frá Alþingi sem ætlað er að mæta kostnaði þingmanna sem þurfa vegna starfa sinna að halda annað heimili fjarri heimahögum sínum.
Steingrímur hélt hins vegar ekki tvö heimili. Hann bjó og starfaði í Reykjavík.
Almenningur sat hins vegar ekki við sama borð. Venjulegt fólk fékk ekki sérstakar greiðslur til að lina byrðar verðtryggðra lána sem stækkuðu á köflum hraðar en kanínubú í uppsveiflu.
Nú er þessi gamli forréttindakarl mættur á ritvöllinn…
Nú er þessi gamli forréttindakarl mættur á ritvöllinn til að segja landsmönnum hvers vegna þeir eigi að sætta sig við óbreytt ástand og kjósa nei 29. ágúst. Maður fær næstum á tilfinninguna að draugur fortíðar gangi aftur um salina, ekki til að losa almenning úr fjötrum heldur til að bóna þá og pússa. Herða skrúfurnar aðeins betur.
Maðurinn sem dansaði lipurlega í glufum kerfisins virðist hafa lítinn áhuga á að aðrir sleppi undan ófrelsinu. Hann vill hafna áframhaldandi aðildarviðræðum og réttlætingin er í raun byggð á tveimur bröndurum.
Sá fyrri snýr að honum sjálfum sem ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Honum gekk að eigin sögn svo illa að ná árangri í viðræðunum við Evrópusambandið að hann virðist telja tilgangslaust að reyna aftur. Hann minnist hins vegar lítið á að hann var sjálfur andvígur inngöngu í Evrópusambandið allan tímann og nálgaðist því verkefnið með hangandi hendi.
Þetta rifjar óneitanlega upp Icesave-samningana sem Steingrímur reyndi að troða ofan í kok landsmanna. Ekki einu sinni heldur tvisvar.
Steingrímur landaði lélegum samningum og naut þar aðstoðar formanns samninganefndar sem virtist stundum hafa meiri áhuga á sumarbústaðnum en samningsborðinu. Sællar minningar!
Hinn brandarinn snýst um fortíðarþrána. Hún virðist vera orðin svo rótgróin að varla má sjá útlending með pening á norðausturlandi án þess að mjólkin hlaupi í kekki á Gunnarsstöðum.
Steingrímur heldur því fram að Íslandi hafi gengið vel í fortíðinni og því sé óþarfi að breyta um stefnu þó heimurinn hafi tekið stakkaskiptum. Skoðum þá fullyrðingu aðeins nánar.
Það er því býsna djarft að maður sem notar eigin samningaferil sem helstu rök…
Frá aldamótum hefur ýmislegt gengið á. Þar má nefna fjármálahrunið mikla sem Steingrímur þekkir betur en flestir. Þá skutust vextir og verðbólga upp úr öllu valdi. Og ef litið er aðeins lengra aftur blasir við saga óðaverðbólgu, síendurtekinna gengisfellinga og vaxta sem hefðu getað fengið okurlánahákarl til að roðna.
Margar fjölskyldur og fjölmörg fyrirtæki greiddu dýrt verð fyrir þessa hagstjórn. Samt er þetta tímabil gjarnan kynnt sem einhvers konar velgengnissaga í heimi Steingríms J.
Síðan virðist gleymast að efnahagsbatinn eftir hrunið byggðist ekki á snilligáfu íslenskra stjórnvalda. Þar kom til heilmikil heppni. Eyjafjallajökull gaus á hárréttum tíma fyrir ferðaþjónustuna og uppgjör þrotabúa gjaldþrota útrásarbanka færði Seðlabankanum gríðarlegan gjaldeyrisvarasjóð. Slíkt getur verið ágætt á meðan það endist en heppni er ekki hagstjórn.
Fortíðarmaðurinn virðist einnig gleyma því að áður en hrunið skall á bauðst breski seðlabankinn til að taka yfir eftirlit með útibúum íslenskra banka í Bretlandi. Þjóðarrembingurinn hafði þá betur og afleiðingarnar þekkjum við öll.
Það er því býsna djarft að maður sem notar eigin samningaferil sem helstu rök gegn nýjum samningaviðræðum skuli nú stíga fram sem leiðsögumaður þjóðarinnar fyrir kosningarnar 29. ágúst.“