- Advertisement -

Stendur Ögmundur með auðvaldinu?

Sigurður Þór Salvarsson skrifar um nýja grein Ögmundar Jónassonar, sem má finna hér.

Sigurður Þór skrifaði:

„Alveg er þetta makalaus orðræða hjá Ögmundi. Gerir hann sér ekki grein fyrir því að hann hefur sjálfur tekið sér stöðu við hlið auðvaldsins, atvinnurekenda og öfga hægrimanna í að neita íslenskum almenningi um að yfirhöfuð fá að sjá hvort samningur við Evrópusambandið gæti fært Íslendingum meiri hagsæld til framtíðar? Eða eru íslenskir auðvaldshundar eitthvað betri en auðvaldshundar annarra landa?“

Tvö sýnishorn úr grein Ögmundar:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Stórútgerðin – eða öllu heldur eigendur hennar – munu eflaust pluma sig innan Evrópusambandsins komi til þess að Ísland gangi þar inn. Hins vegar er önnur saga með smáu og meðalstóru fyrirtækin svo ekki sé talað um almenning í landinu, byggðirnar í kringum landið og þjóðarbúið í heild.“

„En hitt er ljóst að braskararnir, skjólstæðingar ríkisstjórnar Íslands, væru komnir á sinn sælureit létum við – þjóðin – undir höfuð leggjast að sameinast um að segja Nei í ágúst.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: