Stjórnmál

Stimpilpúðarnir við Austurvöll

By Miðjan

November 11, 2026

Alþingi:

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki baunaði á ríkisstjórnina á þingi  gær:

„Hljóð og mynd fer ekki saman hjá ríkisstjórninni og það er mjög áberandi í vinnu okkar í efnahags- og viðskiptanefnd. Í því samhengi vil ég benda á að í stefnuyfirlýsingu og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar kemur fram að planið sé einfaldað regluverk. En hver er raunin? Hvert frumvarpið á fætur öðru sem kemur inn í nefndina er með yfirlýstan tilgang og markmið að einfalda regluverk en staðreyndin er einhver allt önnur. Við erum ekki að einfalda regluverk. Nei, ef það er eitthvað smá örlítið einfaldað þá er sett svo mikil eftirlitsskylda á móti að þetta sýnir bara algjört skilningsleysi hjá þessari ríkisstjórn á því hvernig atvinnulífið virkar.

Þetta, frú forseti, er eitthvað sem ég tel mjög alvarlegt; ríkisstjórnin heldur því ítrekað fram og blekkir almenning að hún sé að gera eitthvað en gerir svo eitthvað allt annað. Og varðandi einföldun regluverks, sem er ofarlega í huga hjá ríkisstjórninni í orði en ekki á borði, þá vil ég benda á að í engu frumvarpi sem við höfum til meðhöndlunar hér er komið fram með alvöruaðgerðir og það eru komin tvö ár hjá þessari ríkisstjórn.

En hún hefur líka lofað öðru sem hún hefur ekki staðið við. Hún lofaði að hækka ekki skatta, hún er ekki að standa við það. Skatta- og gjaldahækkanir koma á færibandi inn í efnahags- og viðskiptanefnd og engar mótbárur virðast vera því frumvörpin fara yfirleitt óbreytt út.

Frú forseti. Ríkisstjórnin þarf að fara að rifja upp eigin loforð því hæstvirt ríkisstjórn og ráðherrar sitja í ráðherrastólunum út á þessi gefnu loforð. Hvernig væri þá að standa við þau?

Fyrirsögnin er Miðjunnar.