- Advertisement -

Stórbrotin sjálfsblekking

Daniel Hannan, enskur lávarður, sem á sæti í lávarðadeild enska þingsins, var Íslendinga enn og aftur við að hefja viðræður við Evrópusambandið. Sjálfur var hann framarlega í Brexitákvörðuninni á sínum tíma. Hann skrifar grein í Mogga dagsins. Hér er valdur kafli greinar hans:

„Hvers vegna er þá nokkur maður að leggja til nánari tengsl við Brussel? Hvaða hugsanlega vandamál ætti aðild að ESB að leysa? Sumir Íslendingar eiga að sjálfsögðu von á ávinningi sem embættismenn eða þingmenn á Evrópuþinginu. Lífið í Brussel getur – treystið mér hvað þetta varðar – verið auðvelt og íburðarmikið. En jafnvel þeir sem girnast risnureikning sælkerans meðal Michelin-stjörnuprýddra embættismanna ESB vita að lítill áhugi er á aðild. Auðugt og farsælt land, sem býr yfir umtalsverðum náttúruauðlindum, gengur ekki léttilega í efnahagsbandalag sem vex ekki og kann að hafa gengið á eigin auðlindir, sérstaklega sjávarauðlindirnar. Því hafa þeir gripið til snjallrar aðferðar. Í stað þess að spyrja fólk hvort það vilji ganga í sambandið spyrja þeir hvort það vilji ræða málin. Þjóðaratkvæðagreiðslan er kynnt sem leið til að komast að því hvaða skilmálar kynnu að bjóðast.

Sjálfsblekkingin sem þarf til að halda þessari tálsýn á lofti er sannarlega stórbrotin. Íslendingar eru beðnir að trúa því að ESB, ósveigjanlegasta stofnun jarðar, myndi breyta reglum sínum til að koma til móts við land þar sem býr innan við 0,1 prósent íbúa sambandsins.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Áskrifendur Moggans geta nálgast greinina í Mogga dagsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: