Birgir Dýrfjörð skrifar:
Fyrir 40 árum fékk fékk ég bréf frá útvarpsréttarráði uppá það, að ég ásamt vini mínum Bjarna Pássyni, hefðum verið skipaðir útvarpsstjórar á útvarpinu Rás A.
Það var fyrsta útvarpsstöðin sem samþykkt var í samræmi við nýsett lög um útvarpstöðvar.
Hún var á vegum Alþýðuflokksins og náði frá Keflavík að Aranesi.
“Ritskoðun eða aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða”.
Við tókum embætti okkar alvarlega og ég kynnti mér viðkomandi lög þar um m.a. 73.gr. stjórnarskrár Íslands.
Þar stendur “Ritskoðun eða aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða”.
Við Bjarni tókum þetta ákvæði í stjórnarskránni svo kyrfilega, að við gáfum öllum framboðum á höfuðborgarsvæðinu eina frjálsa klukkustund í útvarpi okkar. Öll framboðin nýttu sér það boð.
AF HVERJU HÉR OG NÚ
Af hverju er ég svo að rifja upp þessa sögu hér og nú. Það er vegna þess að fyrrverandi forseti Íslands og gæslumaður þess að þjóðin og Alþingi virði stjórnarskrá sína kom öllum á óvart og varð uppvís að því að mynda bandalag um að tálma tjáningafrelsi þjóðarinnar þannig, að hún fái ekki vitneskju um hvað henni gæti hugsanlega staðið til boða í samningum.
Þá rifjaðist upp 73. gr.í stjórnarskránni. Hún verður aldrei of oft lesin.
Þar segir; “Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða”.
Nýlega voru stofnuð samtök að styðja ritskoðun og tálmun á tjáningarfrelsi.
Þau eru á skjön við 73. gr. Stjórnarskrár íslenska lýðveldisins.
Að fánaberi þeirra samtaka skuli vera fyrrverandi forseti Íslands gerir mann orðlausan.
LOKAORÐ
Að lokum bið ég alla sem lesa þessi skrif að spara sér ljóta dóma um forsetan fyrrverandi. Þeirra er engin þörf, hann er einfær að dæma sig sjálfur. Lesendur mega aftur á móti deila þessum skrifum.