ÚTVEGUR:
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
„Ég hef fengið á mig harða gagnrýni frá bæði þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóranum í Stykkishólmi fyrir að gagnrýna skýrslu Rannsóknarseturs Bifrastar um áhrif mismunandi úthlutunar á veiðiheimildum í 5,3% pottinum. Það sem er furðulegast við gagnrýni þess síðarnefnda er að hann virðist a.m.k. að hluta til vera sammála mér efnislega.
Til þess að forðast frekari orðahnippingar um þessa vitleysisskýrslu þá birti ég hér orðrétt niðurstöðu rannsóknarinnar um strandveiðar. Eftirfarandi er niðurstaða rannsóknarinnar á áhrifum strandveiðar á byggðir landsins en hún rammar ruglið inn.
„Marktæk jákvæð fylgni var á milli landaðs strandveiðiafla og atvinnutekna kvenna og atvinnuleysi karla (væg) en neikvæð gagnvart útsvarstekjum, atvinnutekjum karla (væg) og búferlaflutningum kvenna.“