Greinar

Suðupottur í Sjálfstæðisflokki

By Miðjan

September 29, 2026

Stjórnmál:

„Orðið á götunni er að Guðrún Hafsteinsdóttir, sem óvænt varð formaður Sjálfstæðisflokksins, reyndar betri kostur en mótframbjóðandinn, hafi ekki náð tökum á flokknum enda er Sjálfstæðisflokkurinn þverklofinn – rétt eins og venjulega. Saga Sjálfstæðisflokksins markast af endalausri og hatrammri valdabaráttu síðustu rúmlega hálfu öldina. Á því virðist ekkert lát ætla að verða.

Innan Sjálfstæðisflokksins er nú farið að undirbúa framboð gegn Guðrúnu á landafundi næsta ár.“

Þetta er hluti af grein á dv.is, þ.e. Orðið á götunni. Þar er spáð og spekúlerað um stöðu Guðrúnar formanns Sjálfstæðisflokksins. Lesum meira:

„Meðal núverandi Sjálfstæðismanna eru þær nefndar til sögunnar Ásdís Kristjánsdóttir, sem virðist hafa ótakmarkað sjálfsálit og einnig Hildur Björnsdóttir, manneskjan sem náði því að verða borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins eftir nánast aldarþriðjungs hlé, með stuttum innhlaupum. Reyndar í skjóli fulltrúa Viðreisnar og Framsóknar.

Baráttan mun sennilega snúast um Ásdísi Kristjánsdóttur eða Guðrúnu Hafsteinsdóttur áfram.“

Greinina alla má lesa á dv.is.