Greinar

Svakalega nútímalegt að aftengja þingið

By Miðjan

June 16, 2023

Atli Þór Fanndal:

Finnst svolítið flott hjá framkvæmdavaldinu að koma áfengi í matvöruverslanir og leggja raunar niður ATVR án þess að löggjafinn komi að. Svakalega nútímalegt að aftengja þingið enn einu sinni og fara bara framhjá löggjafanum. Rústuðu Póstinum, ætla að gera það sama með ATVR og auðvitað stöðvuðu störf þingsins við veitingu ríkisborgararétt. Hrikalega nútímalegur stjórnunarstíll hjá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Legg til að þau skelli í frelsislottó fyrir fanga næst og læk söfnun í beinni á Tik tok fyrir vinsælasta hælisleitendann. Flest læk fær að vera en númer tvö fær frítt á Barbie myndina með stórum popp og kók kvöldið fyrir brottvísun.