- Advertisement -

Svartur dagur í sögu borgarinnar

„Það fólk sem sagt var upp í dag starfaði fyrst og fremst við stuðning og þjónustu við borgarbúa, börn og fjölskyldur, fatlað fólk , eldra fólk og fólk sem er að takast á við félaglegar áskoranir,“ skrifaði Heiða Björg Hilimisdóttir, borgarfulltrúi Samfó og fyrrverandi borgarstjóri, vegna uppsagnanna hjá Reykjavíkurborg.

„Lagt var niður teymi sem veitir mikilvægan stuðning til fólks sem hefur einangrast, býr í fátækt eða þarf sérstakan stuðning til virkni. Teymi sem tryggir úrræðu fyrir börn og ungmenni og fjölskyldur í vanda. Starfsfólk sem hefur skipulagt og starfað við félags og frístundastarf með börnum og ungmennum, starfað að forvörnum og þáttöku allra í samfélaginu. Með þessu fólki hverfur ómetanleg þekking, reynsla og tengsl við fólkið í borginni og ólíkar áskoranir í hverfum borgarinnar. Þetta er sannarlega svartur dagur í sögu borgarinnar eins og formaður Sameyki stéttarfélags segir og hugur minn er hjá þeim sem misst hafa vinnuna en líka þeim fjölda fólks sem þessar breytingar munu bitna á til skemmri eða lengri tíma,“ segir í skrifum Heiðu Bjargar.

(Fyrirsögnin er Miðjunnar).


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: