- Advertisement -

Tár, bros og tollar

Ísland getur afnumið alla tolla á innflutning strax á morgun, aðild að ESB er ekki forsenda þess.

Hildur Sverrisdóttir.

Hildur Sverrisdóttir Sjálfstæðisflokki skrifaði:

„Ekki verður annað lesið úr málflutningi margra en að þess sé vænst að aðild að ESB komi til með að lækka matvælaverð svo um munar. Staðreyndin er sú að ekki er samið um neins konar verðlag í aðlögunarviðræðum við ESB. Hátt verðlag á mat hér ræðst af þáttum eins og háum íslenskum launum, flutningskostnaði um langan veg og innlendum sköttum en jú, vissulega líka – tollum.

Samhliða niðurfellingu þeirra tolla sem lagðir eru á vörur frá ESB, t.d. ákveðnar landbúnaðarafurðir, mun verðmiðinn á ákveðnum vörum úti í búð sannanlega lækka sem þeim nemur. Þegar hefur verið gerð grein fyrir verndartollum fyrir íslenskan landbúnað á þessum vettvangi og að íslensk stjórnvöld geti afnumið þá ef þau vilja.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á móti verða þó lagðir á tollar ESB á vörur frá löndum eins og Kína, t.d. bíla og fatnað, sem eru tollfrjálsar á Íslandi í dag þar sem ESB hefur ekki gert fríverslunarsamning við Kína eins og við. Þannig er líklegt að verð ákveðinna vara kunni að lækka en annarra hækka. Aldrei verður unnt að fullyrða nákvæmlega um heildaráhrif þess á verðlag, slíkt er með öllu óábyrgt og ekki til eftirbreytni í umræðu sem gagn á að vera að.

Já-sinnar hafa þó kastað fram 25% lækkun á mat og segja það hafa verið reyndina hjá Svíum og Finnum eftir inngöngu þeirra í ESB árið 1995. Konráð Guðjónsson hagfræðingur hefur bent á að líklega hafi lækkunin eftir inngönguna verið um og undir 10%.

Reynsla annarra landa kann vissulega að gefa vísbendingar um framvinduna en þá verður samanburðurinn að ganga þokkalega upp. Erfitt er að heimfæra það sem gerðist annars staðar fyrir þremur áratugum á stöðuna eins og hún er í dag enda tollar í heiminum almennt lægri en þeir voru á tíunda áratug síðustu aldar, svo eitthvað sé nefnt. Þá getur einnig verið vandasamt að líta til ríkja sem gengið hafa inn í ESB í seinni tíð en eru afar ólík Íslandi og löndin ekki þegar aðilar að innri markaðinum í gegnum EES-samninginn.

Í dag hefur Ísland fulla stjórn á því hvort tolla skuli ákveðnar vörur eða ekki. Við getum gert fríverslunarsamninga við hvaða ríki sem er, hugnist okkur svo. Þeim samningum missum við forræði yfir með inngöngu í ESB þar sem sambandið gerir fríverslunarsamninga fyrir sambandið í heild, enda tollabandalag.

Ísland getur afnumið alla tolla á innflutning strax á morgun, aðild að ESB er ekki forsenda þess, líkt og afnám vörugjalda og tolla á allar vörur nema búvörur árin 2015 til 2017 bar með sér. Ávinningurinn af þeirri aðgerð skilaði sér óumdeilanlega í vasa neytenda.

Gylliboð um lægra matvöruverð til að selja viðræður við ESB er því bjögun á staðreyndum málsins. Slíkur áróður væri broslegur ef hann væri ekki hreinlega grátlegur í ljósi mikilvægis réttra upplýsinga í þýðingarmiklu hagsmunamáli þjóðar.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: