Fréttir

Telma eini fréttamaðurinn í kvöldfréttum Sýnar – utanríkisráðherra var í löngu viðtali

By Miðjan

January 05, 2026

Fjölmiðlar: Athygli vakti í fréttatíma Sýnar í kvöld að utanríkisráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, var gestur í myndveri í hátt í tuttugu mínútur.

Ekki síður að Telma Tómasson fréttalesari var ein frá fréttadeildinni sem virðist hafa verið á fréttavakt. Nánast allur fréttatíminn fór í fréttir og samtal Telmu og Þorgerðar um innrás Bandaríkjaforseta og hans kóna í Venezúela.

Fréttatíminn var semsagt mjög sérstakur. Hvers vegna hlýtur að skýrast í kvöld.