Úlfar Hauksson skrifaði:
Íhaldsmenn á Alþingi ræða stóru málin sín á milli! Nú vill svo til að áfastir tappar er risa framfaraskref fyrir fólk með athyglisbrest og í raun allt mannkyn. Nú þurfa slíkir einstaklingar ekki lengur að eyða tíma í að leita að flöskutöppum út um allt…. þeir eru einfaldlega fastir við flöskuna…. alger snilld. Uppgötvun á pari við beislun elds og hjólsins. Einföld og alveg geggjuð. Þessir pappakassar… sem þjást svona líka yfir þessu… eru greinilega ekki búnir að uppgötva að það er hægt að slíta flöskutappann af hjörunum með einu laufléttu handtaki og þá eru þeir blessaðir búnir að fá sinn lausa tappa og geta tekið gleði sína á ný. Getur einhver komið þessu til skila svo þessir trúðar eyði ekki fleiri klukkustundum af fundartíma Alþingis í svona rugl…?