
Grein: Þórður Snær Júlíusson skrifaði á Kjarnyrt:
Á síðustu dögum hefur verið reynt að telja okkur trú um að það sé í raun ódýrt að versla í matinn á Íslandi, að vaxtakjör á húsnæðislánum hérna séu ekki hræðileg heldur frábær og að ábyrg efnahagsstjórn sé ekkert annað en aðför að bönkum með allt of háa arðsemiskröfu. Umræðan minnir sífellt meira á þá sem átti sér stað fyrir ári þegar hagsmunahægrið hneppti niður að nafla, þyrlaði í hvítvíni og reyndi að gaslýsa þjóð frá því að leiðrétta veiðigjöld á stórútgerðina.
Morgunblaðið hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum að undanförnu í sífellt súrrealískri og ótrúverðugri framsetningu á áróðri sínum fyrir hönd sérhagsmunahópsins sem á og rekur blaðið. Fyrir utan hefðbundnu kranablaðamennskuna, sem birtist meðal annars í nánast vikulegri gegnumstreymislokafrétt um hvaða skoðanir Guðlaugur Þór Þórðarson eða Jón Gunnarsson hringja inn í fyrrverandi aðstoðarmann þess síðarnefnda, er blaðið vitanlega komið á djöflamerginn þegar kemur að andstöðu við að þjóð fái að taka ákvörðun um hvort hún vilji sjá aðildarsamning við Evrópusambandið eða ekki.

Sjá nánar á Kjarnyrt á Facebook.