Eftir að hafa stjórnað þættinum Synir Egils, ásamt Gunnari Smára bróður mínum er mínum í gær, liggur nokkuð á mér að málsmetandi konur sem voru gestir okkar í þættinum, hafi verið sammála um að bakslag sé í réttindabaráttu kvenna.
Þær nefndu eina og aðrar ástæður fyrir hvernig komið er. Mér fannst þetta merkilegt á sama tíma og konur eruí öllum helstu ráðandi störfum og embættum og eru svo sannarlega áberandi, sem og aðrir konur.
Þrjár konur mynduðu ríkisstjórnina, kona er því forsætisráðherra, kona er forseti, kona er biskup, kona er borgarstjóri, konur eru rektorar allra háskóla á Íslandi, konur eru mjög áberandi í menningarlífu, Björk, Laufey og margar aðrar.
Konur eru formenn í VR, Eflingu, BSRB, BHM og mörgum öðrum félögum launafólks. Kona er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og eflaust er að hægt að telja upp fleiri konur á valdastólum eða mjög sýnilegar þó þær fari ekki allar með völd.
Nú verða konurnar að líta á sig sjálfar og breyta því sem þær geta. Sennilega hafa þær aldrei haft eins góð færi á að breyta því sem miður hefur farið.
Áfram stelpur.
-sme