Samfélag:
Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Enn einu sinni sýnir ríkisstjórnin sitt rétta andlit. Það eru útlendingar en ekki stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á öllu. Þessi EES regla er bull. Hún byggir á einhverjum heimskulegum móralisma um að óæðra fólk sé að fá eitthvað frítt sem það á ekki að fá. Raunin er sú að Ísland er bara ekkert sá segull hæfileikafólks sem íslenska yfirburðarhyggjan telur sér trú um. Þessi regla mun ekki þéna neitt af viti. Það er hægt að fá betra nám og ódýrara á betri mörkuðum fyrir minna fé.
Það eina sem mun gerast er að við fáum færri til að vinna hér og borgum meira fyrir hæfileika. Þetta er bjánaskapur. Menntun skapar gæði fyrir alla. Við græðum á að fólk mennti sig hér en töpum ekki á því. Því fleiri sem læra íslensku því betra. Draumórar ríkisstjórnarinnar um að laða til sín einhver anti-vók atkvæði með því að gera lífið sem allra verst fyrir útlendinga virkar ekki. Frá því að þau tóku við hefur þetta fólk varla opnað munninn á sér nema til að tala illa um útlendinga. Atvinnuleysi er hátt, verðbólga er há og þau hafa tapað öllum kosningum frá myndun ríkisstjórnar. Það virkar ekki að keppa í grimmd.“