Fréttir

Þegar augljóst tjón verður að ávinningi hagfræðings

By Miðjan

October 31, 2026

Fiskveiðistjórnun:

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Fyrir nokkru fékk ég gagnrýni á skrif mín um aflareglu í þorski, frá hagfræðingnum Ásgeiri Daníelssyni sem starfaði á sínum tíma m.a. við umfjöllun um aflaregluna.

Ekki ætla ég að eyða púðri í einkunnagjöf og hártoganir á skrifum mínum heldur inntaki málfltunings Ásgeirs um að mikill ávinningur hafi verið af því að taka upp aflareglu í þorski.

Upphafið

Ásgeir Daníelsson segir orðrétt í gagnrýni sinni: „Það var því stórt átak að minnka þorskaflann á Íslandsmiðum úr 251 þús. tonnum á árinu 1993 í 170 þús. tonn á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september 1995.“ Þess ber að geta að þorskaflinn hafði að jafnaði verið miklu mun meiri áður en með hertari tökum á veiðumi þá hertist á stefnu sem gekk í stuttu máli út á að draga úr sókn til þess að fá meira seinna.

Aflareglan og skýrslan (frá 1994) um hana var kynnt fyrir stjórnvöldum og almenningi sem vísindaleg lausn sem myndi skila stórfelldri stofnuppbyggingu og meiri afla. Reglan horfði alfarið til stofnstærðar þorskins en vissulega var talið afleiðingar hefðu áhrif á rækju og loðnu.

Hver er niðurstaðan – mínus 40 þús tonn/ári

Aflinn frá því að „ stórátakið“ í fiskveiðistjórn hófst hefur verið liðlega 40 þúsund tonnum minni að meðaltali en þau 251 þús tonn sem aflinn var árið 1993. Í ár er áætlað að óbreyttu að veiða rétt liðlega 200 þús tonn. Tjónið er enn meira ef það er borðið saman við hvað aflinn var að meðaltali áður en tekin var upp stefna að draga úr sókn til að veiða meira seinna.