Mannlíf

Þegar gamla fólkið dó í Leifsstöð

By Miðjan

March 01, 2023

Á leiðarasíði Fréttablaðsins er dálkur sem nefnist Frá degi til dags.

Þar segir:

Það eru 34 ár síðan bjórinn var leyfður og veruleikinn hefur breyst ansi mikið síðan lögin tóku gildi.

Íslendingar búa ekki lengur í moldarkofum og fá sér jafnvel einn bjór eftir vinnu og fara svo bara heim að elda. Það þekkist að fólk geti hætt.

Sérstaklega ungt fólk sem er þúsund sinnum betra drykkjufólk en gamla fólkið sem allt var dautt úti á Keflavíkurflugvelli á leið í frí.

Það þurfa ekki allir sem fá sér einn skítkaldan að staulast inn á SÁÁ. Það er liðin tíð. Auðvitað á Ísland að stíga skrefið eins og þekkist úti í Evrópu.

Leyfum þetta allt. Hvað er það versta sem gerist?